Mánudagur. Helgin er liðin og fyrsti vinnudagur vikunnar hefst. Helgin var góð, ýmislegt var gert. Þar má telja að farið var á rúntinn á föstudagskvöld, við ættluðum þó ekki að enda bara á rúntinum en sökum þreitu þá vildu allir fara heim. Heim var farið og mikið sofið… Eða mismikið sofið. Ég til að mynda svaf bara mjög vel.
Dagurinn byrjaði ekki fyrr en um hálf 2 leitið. Eftir það leið hann mjög hratt. Sumir sváfu vel og lengi þennan dag. Og öðrum fannst gaman að fylgjast með sumum sofa vel og lengi. Ég kíkti örlítið í tölvuna af gömlum sið, talaði við foreldrana og annað sem manni ber að gera.
Þetta kvöld var förinni heitið í partí til Rúnars og Lenu. Rétt þegar við ættluðum að leggja af stað á þennan fyrirheitna stað neitaði bíllinn minn að starta sér, okkur til sárar ánægju. En einsog hetjan sem hún er, kom Lenus Maximus föruneitinu til bjargar. Þessi stund mun ætíð í háminnum haft.
Við komum í partíið og skemmtum okkur bara mjög vel, að ég tel. Við spiluðum til að mynda Idiot
. Fólk var misgott í því ( ég vann aldrei
). Síðar þetta kvöld var haldið niður á Kaffi Akureyri, þar sem við reindum að vinna okkur örlítið pláss á gólfinu þar. Þessi barátta var senn töpuð og við hrökluðumst út, en þá komumst við að því að Leiðtoginn Lena hafði gufað upp! Mikið var um grátur og gnístur tanna.
Kvöldið hefði getað endað betur, en fyrir mig verð ég að seigja að ég hafði gaman og leið bara vel.
Vikan hefur farið vel í mig. Lífið er gott.
Stjörnu spáin:
“Þú ert æstur að fá að vita allt um nýju persónurnar í einkaleikritinu þínu. Það gæti gert eldri persónur afbrýðisamar.”
Lag blogs:
Electric Six – Dance Commander!
- Passaði mjög vel við laugardaginn. Passar raunar við allar helgar, IMHO.
PS!
Og þið öll sömul… Ég er ekki að gleyma ykkur. :*

Leave a comment
Comments feed for this article