Góði lesandi,
þessi færsla er skrifuð í þeim tilgangi að láta þig, lesandi, vita að hér eftir mun ‘NINJA’ ruglið vera í minni parti. Það þíðir þó ekki að allt bull sé búið nú, nei þess er fjærri. Einsog lesendur hafa tekið eftir hef ég dregið mig inn í skél þessa undanförnu daga og mánuði, ég hef ritað lítið, svo lítið að það byrtist ekki. Þegar lesendur hættu að skrifa athugasemdir við færslur þær sem fyrir eru leit ég svo á sem lítill áhugi væri fyrir skrifum mínum. Það er þó kanski skiljanlegt, en nú er bara að herða sig. Þó enginn lesi færslur þær sem koma munu ættla ég að einsetja mér að vera duglegur við skriftir.

Til að mynda get ég gefið ykkur smá innlit í líf mitt, en það saman stendur af:

  • Vakna
  • Vinna
  • Borða
  • Sofa

Milli þess sem ég vinn og sef, hef ég kanski 4 klukkustundir til þess að gera það
sem mig langar til. Þetta veldur því að ég met til muna þessar fáu klukkustundir
af frítíma en áður. Rétt er að seigja að maður lifi fyrir helgarnar. En að eigin mati
verð ég að seigja að lífið gæti sjálfsagt verið mun verra.

Á öðrum nótum ættla ég að seigja að hér með verður Stjörnuspá dagsinns og lag blogsinn í hverri færslu hér eftir.

Lag blogsinns (nei þetta er ekki stolið.. hæ Lena.) :

Pink Flamigos – Electric Six..

Stjörnuspáin:

Hví að sætta sig við að vera stöðugt hálfóánægður? Ný andleg mynd hressir upp á ástarlífið. Vertu bjartsýnn, ástvinur vill allt fyrir þig gera.

.

NINJA bull gæti komið síðar! Haldið í vonina.
- ninjaah.

PS:

Þeir sem eru að leita að myndunum úr ferðinni eru þær Hérna.

! Varúð, ég henti þessu bara inn og nennti ekki að filtera myndirnar neitt, þetta var bara svona í myndavélinni minni og fótósjopp kláraði restina.

Advertisement